Reikistjörnurnar


Reikistjörnur virðast vera á sífellu reiki miðað við mynstur fastastjarnanna og sumar breyta verulega birtu sinni með tímanum, andstætt því sem gerist um fastastjörnur.

Auðvelt er að bera kennsl á Mars, Júpíter og Satúrnus. Hreyfing þeirra er í allra grófustu dráttum svipuð gangi sólarinnar. Aðalhreyfingin yfir himininn er frá austri til vesturs eða réttsælis eins og hjá öðrum himinhnöttum.

Auk þessara reikistjarna eru fleiri sem hegða sér öðruvísi, eru annaðhvort kvöld eða morgunstjörnur.

Nineplanets460.jpg (6283 bytes)

Á braut um sólu eru 9 reikistjörnur, þeim má skipta í tvo hópa, innri reikistjörnurnar og ytri reikistjörnurnar.

Innri reikistjörnurnar eru þær sem eru nær sólinni, Merkúríus, Venus, Jörðin og Mars. Þær eru allar líkar að því leyti að þær hafa fast yfirborð og þær hafa þunnt andrúmsloft. Merkúríus er þó undantekning því þar er ekkert andrúmsloft. Yfirborð innri reikistjarnanna er gígar sem hafa myndast vegna árekstra við lofsteina og vegna eldfjalla.

Ytri reikistjörnurnar sem eru fjær sólinni, eru Júpíter, Satúrnus, Úranus, Neptúnus og Plútó. Þessar reikistjörnur að Plútó undanskilinni eru allar mun stærri en þær innri. Þessar reikistjörnur eru úr lofttegundum.