Garšaskóli - Garšabę
Forsķša
mišvikudagur, 22 febrśar 2012
Skyndihjįlparnįmskeiš fyrir 10. bekk
mišvikudagur, 14 maķ 2008

Fimmtudaginn 15. maí verður haldið skyndihjálparnámskeið fyrir 10. bekk í stað hefðbundinnar kennslu. Starfsmenn frá Garðabæjardeild Rauða kross Íslands standa að námskeiðinu og eru jafnframt leiðbeinendur ásamt kennara frá Garðaskóla. Nemendur eiga að mæta kl. 9.00 í skólann í eftirfarandi stofur:
 

Bekkur                        Stofa
10. AR                            301
10. GE                            302
10. HT                            303
10. HV                            304
10. IW                             Út 1
10. RE                            Út 2
10. SG                            201


Dagskrá lýkur kl. 14.00.

 
Aš afloknum samręmdum prófum
fimmtudagur, 08 maķ 2008

Í morgun luku 10. bekkingar við síðasta samræmda prófið. Við óskum þeim til hamingju með áfangann!

Eftir hádegið safnaðist stór hluti árgangsins saman á skólalóðinni, pakkaði föggum sínum í rútur og hélt af stað í vorferð Garðalundar. Ferðinni var heitið í Þórsmörk þar sem nemendur mun njóta samveru og útivistar. Starfsmenn skólans óska hópnum góðrar ferðar og mikillar skemmtunar.

Þeir nemendur í 10. bekk sem ekki fara í Þórsmerkurferðina mæta í skólann kl. 8.50 á föstudaginn. Dagskrá þeirra byrjar á bókasafni skólans og mun hópurinn vinna verkefni um kvikmyndir.

 

 
Hreinsunardagur
fimmtudagur, 08 maķ 2008

Miðvikudaginn 7. maí fóru nemendur í 8. bekk út með kennurum og hreinsuðu umhverfi skólans. Garðyrkjudeild bæjarins lagði til hrífur og rusl var hreinsað á skólalóð, í kringum lækinn og út með hitaveitustokknum. Mikil þörf var á að hreinsa upp eftir veturinn og stóðu nemendur sig með stakri prýði. Þeir voru jákvæðir og vinnusamir og eiga hrós skilið fyrir verkið!

 

 
Hįskóli unga fólksins
žrišjudagur, 06 maķ 2008
Image Má bjóða þér í ferð um undraveröld þekkingarinnar? Dagana 9. - 13. júní breytist Háskóli Íslands í Háskóla unga fólksins. Þá gefst vísindamönnum framtíðarinnar (f. 1992-96) kostur á því að sækja fjölda stuttra námskeiða og kynnast undrum tilverunnar með vísindamönnum Háskóla Íslands. Sjá nánari upplýsingar á heimasíðu HUF.
 
Prófadagar
föstudagur, 02 maķ 2008

Vorpróf fara fram í Garðaskóla 29. apríl – 9. maí. Nemendur í 10. bekk þreyta samræmd próf og prófatafla 9. bekkjar tekur mið af þeim prófum þar sem fjölmargir nemendur í 9. bekk taka eitt eða fleiri samræmd próf. Í 8. bekk eru jafn mörg próf og í öðrum árgöngum en þar raðast fögin niður á aðra daga en í eldri bekkjunum. Prófatöflu má nálgast hér á hægri spássíu heimasíðunnar.

Athugið að miðvikudaginn 7. maí er upplestrarfrí í 10. bekk en nemendur í 8. og 9. bekk mæta í skólann skv. stundaskrá.

Prófahald hefur farið mjög vel af stað og við óskum öllum nemendum skólans góðs gengis!

 
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Nęsta > Endir >>

Śrslit 1 - 8 af 130
 
© 2012 Garšaskóli - Garšabę
Joomla! is Free Software released under the GNU/GPL License.
Garšaskóli Garšabę | v/Vķfilsstašaveg s: 5902500 fax: 5902501
gudrun@gardaskoli.is